Umsóknarfrestir Grundtvig 2012

Endurmenntun (IST):
16. janúar 2012 (fyrir námskeið frá 1. maí 2012)
30. apríl 2012 (fyrir námskeið frá 1. september 2012)
17. september 2012 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2013)
Miðstýrð þróunarverkefni:
2. febrúar 2012
Samstarfsverkefni:
21. febrúar 2012
Vinnustofur:
21. febrúar 2012
Aðstoðarkennari:
30. mars 2012
Sjálfboðaliðaverkefni 50+:
30. mars 2012


Grundtvig bæklingur



 


Upplýsingar á vef EACEA

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Umsóknir & eyðublöð 

Hér fyrir neðan er hægt að sækja umsóknareyðublöð fyrir árið 2012. Einnig er hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu rafræna umsóknareyðublaðsins.

Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum, þ.m.t kvittuninni fyrir því að umsókn hafi verið send, í tvíriti (frumrit og eitt afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests, 21. febrúar 2012.  Póststimpill gildir. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Grundtvig - Samstarfsverkefni
Háskólatorgi
101 Reykjavík

Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2012.

Áætlun Umsóknir Skýrslur Leiðbeiningar
Samstarfsverkefni

Rafrænt umsóknareyðublað - samstarfsverkefni útg. 3.5 (Acrobat PDF 1774 K)

ATH! Ef senda á umsókn á milli í tölvupósti er ráðlagt að þjappa henni fyrst (zippa).
 

Landskrifstofa sendir verkefnisstjóra samstarfsverkefna tengil í milli- og lokaskýrslu.

Handbók fyrir umsækjendur LLP eForms 2012.doc (Microsoft Word 219 K)
 

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Sjálboðaliðaverkefni 50+ Umsókn (word, 125k) Lokaskýrsla (word, 235k)
Vinnustofur Umsókn (word, 121k)  
Vinnustofur (þátttaka í)* Umsókn learner (word, 93k)  

 

Leiðbeiningar við skýrslugerð

Verkefnisstyrkir ná yfir samningstímabilið frá 1.ágúst – 31. júlí í eitt eða tvö ár. Í tveggja ára verkefnum skal eftir fyrsta árið skila framvinduskýrslu (progressreport) fyrir 30. júní. Að samningstímabilinu liðnu skila styrkhafar inn lokaskýrslu og uppgjöri til landsskrifstofu fyrir 30. september. Styrkir miðast við áætlaðan fjölda ferða og þurfa stofnanir að hafa staðið skil á lágmarksfjölda þeirra. Styrkhafar eru samningsbundnir til að geyma alla reikninga sem tengjast verkefniskostnaði í 5 ár eftir að verkefni lýkur.

Með uppgjöri þarf að senda inn frumrit af flugmiða og öðrum farseðlum/kvittunum sem tengjast ferðakostnaði. Það þarf ekki að framvísa reikningum vegna uppihaldskostnaðar erlendis.

Leiðbeiningar fyrir notkun rafrænna umsóknareyðublaða

Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.2 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:

  1. Vista rafræna umsóknareyðublaðið á skjáborðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum.  Opna umsóknareyðublaðið frá skjáborðinu.
     
  2. Fylla út eyðublaðið  (í tölvunni)- Ekki þörf fyrir að vera nettengdur á meðan;
     
  3. Smella á Validate-hnappinn á rafræna forminu (ekki nettengd/ur): Þessi aðgerð tryggir að allir skyldureitir séu útfylltir( og uppfylli lágmarkskröfu um ákveðið form framsetningar);
     
  4. Senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt: Ath. það er eingöngu stýristofnun samstarfsverkefna sem sendir umsóknina inn rafrænt. Til að senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt þarf tölvan að vera nettengd. Þá er smellt á hnappinn Sumit online á öftustu síðunni. Ef sendingin heppnast kemur upp staðfesting á því;
     
  5. Vista: Við mælum með að þú vistir umsóknina undir lýsandi nafni á góðum stað í tölvunni þinni (þar sem þú getur fundið hana aftur) því þú gætir þurft að skoða hana síðar;
     
  6. Prenta: Rafræna umsóknareyðublaðið (til undirritunar), ath! allir samstarfaðilar þurfa að skila inn útprenti með undirritun til sinnar Landskrifstofu;
     
  7. Senda í pósti til Landskriftofu fyrir lok umsóknarfrests: Útprentaða og undirritaða umsókn. Athugið að ekki er nóg að senda umsóknina inn rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í tvíriti til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests.  Póststimpill gildir.

ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)