Hverjir geta sótt um styrk?
Allar menntastofnanir sem sinna starfsmenntun og aðrir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun á einhvern hátt svo sem skólar og fræðsluaðilar, stéttarfélög og aðilar vinnumarkaðar, félagasamtök og fagfélög, fyrirtæki, aðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf, rannsóknastofnanir og símenntunarmiðstöðvar. Næsti umsóknarfrestur er 21. febrúar 2012.
Hvernig má nota styrkinn?
Veittur er styrkur til að sækja verkefnisfundi. Upphæðin er föst og fer eftir áætluðum fjölda funda á verkefnistímanum.
Aðstoð við umsækjendur
Landskrifstofa Leonardo veitir allar frekari upplýsingar um áætlunina, veitir ráðgjöf varðandi þróun verkefna og aðstoðar umsækjendur við leit að samstarfsaðilum. Verkefnastjóri er Margrét Kr. Sverrisdóttir (mks(hjá)hi.is)






