Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Næsti umsóknafrestur fyrir Leonardo samstarfsverkefni verður 21, febrúar árið 2012 en aðeins er einn umsóknarfrestur á ári.

 

Námskeið fyrir umsækjendur

Árlega eru haldin námskeið fyrir umsækjendur mannaskipta- og samstarfsverkefan. Námskeið fyrir umsækjendur var  haldið 9. janúar 2012. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast útprent af glærukynningu námskeiðsins.

Næsti umsóknafrestur er 21. febrúar 2012

Umsóknakerfið

Umsóknir um samstarfsverkefni árið 2012 skulu gerðar á rafrænu formi  og notuð eru svokölluð eForm sem eru hér á vefnum.  Það er þó þannig að rafræna umsóknin er aðeins send inn í einu landi, þ.e. landi verkefnastjórans (coordinator). 

Í flestum tilfellum er umsóknin unnin í sameiningu af þeim aðilum sem ætla að taka þátt og sækja um styrk til verkefnisins (project coordinator and partners)   Sá sem er verkefnastjóri (coordinator) hefur venjulega yfirumsjón og það er hann sem sendir umsóknina inn rafrænt í sínu landi.  Verkefnisstjórinn sendir síðan öllum þátttakendum (partners) afrit af umsókninni sem þeir síðan prenta út, skrifa undir og senda inn í pappírsformi  til sinnar landskrifstofu.   Athugið að eftir að verkefnisstjóri hefur sent inn rafrænu umsóknina er ekki hægt að breyta henni.  

Allir þáttakendur senda umsóknina undirritaða á pappír með fylgigögnum í tvíriti (frumrit og afrit) til Landskrifstofu.  Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.

Móttakandi:
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo áætlunin
Dunhaga 5
107 Reykjavík

Umsóknareyðublöð

Umsóknareyðublöð fyrir Leonardo samstarfsverkefni ársins 2012 eru rafræn.
Smelltu hér til að komast inn á síðu með rafræna umsóknarforminu og leiðbeiningum við útfyllingu þess.

Við gerð þessa hluta umsóknarinnar er mikilvægt að kynna sér þær upplýsingar sem Evrópusambandið gefur út varðandi markmið, forgangsatriði og leiðbeiningar.  Athugið að í gögnunum er fjallað um allar undiráætlanir Menntaáætlunar Evrópusambandssins (Lifelong Learning Programme) og því þurfa umsækjendur Leonardo að einbeita sér að kaflanum um Leonardo. Smelltu hér til að lesa til að nálgast þessar upplýsingar sem settar hafa verið inn eftir köflum á heimsíðu okkar.

Á heimasíðu Evrópusambandsins er einnig hægt að nálgast upplýsingar um Leonardo da Vinci, starfsmenntahlutann

Styrkupphæðir umsókna ársins 2012:

Veittur er styrkur til að sækja verkefnisfundi. Upphæðin er föst og fer eftir áætluðum fjölda funda og fjölda þátttakenda frá hverjum samstarfsaðila á verkefnistímabilinu. Þannig er hægt að sækja um styrk til 4,8,12 eða 24 ferða á 2ja ára tímabili.

Verkefni Hámarksstyrkur*

4 ferðir (mobilities)

€ 8000

8 ferðir (mobilities)

€ 14000

12 ferðir (mobilities)

€ 18000

24 ferðir (mobilities)

€ 25000

-------------------------------------

Undirbúningsheimsóknir

Þessir styrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvæg fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.

Meðan fjármagnið sem til ráðstöfunar er til þessa verkefnis endist er hægt að sækja um styrkina og eru umsóknir afgreiddar mánaðarlega. Styrkirnir geta verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Umsóknum er skilað til Leonardo skrifstofunnar, og veitir starfsfólk skrifstofunnar nánar upplýsingar um styrkina.

Frekari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og undirbúningsstyrki