|
|
|
Rúmlega 68 milljónum króna úthlutað úr Menntaáætlun Evrópusambandsins til Leonardó mannaskiptaverkefna Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur nú úthlutað því fjármagni sem til ráðstöfunar er árið 2010 á grundvelli umsókna sem bárust 5. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 34 umsóknir þar sem sótt var um 942 þúsund evrur. Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum eða um 68 m.kr., var úthlutað til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga. |
|
Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti íslenski aðilinn til að hljóta vottun mannaskiptaverkefnis en það felur í sér viðurkenningu á fyrri verkefnum og vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin Núna var í fyrsta sinn hægt að sækja um vottun mannaskiptaverkefna sem felur í sér vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin. Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti aðilinn til að hljóta slíka vottun sem veitt er á grundvelli mjög góðra verkefna og vandaðrar framkvæmdar. Námsferðir til Evrópu hafa á undanförnum árum verið hluti af námi í Mótun og nemendur skólans hafa fengið þátttöku sína í slíkum verkefnum að fullu metna sem hluta af náminu. Núna er reiknað með að evrópskt samstarf verði hluti af náminu í þremur deildum skólans, í Mótun-leir og tengd efni, Teikningu og Textíl. |
|
Fjölmargar umsóknir um samstarfs- og yfirfærsluverkefni
Fjölmargar umsóknir bárust um styrki fyrir samstarfsverkefni og yfirfærsluverkefni árið 2010 sem bera vitni um þá miklu grósku sem ríkir í málefnum starfs- og endurmenntunar. Niðurstöður úthlutunar þessara verkefnaflokka verða kynntar í júlí og ágúst. |
|
Stefnumörkun Evrópusambandsins um færni til framtíðar Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur um nokkurt skeið unnið að stefnumótun til framtíðar um með hvaða hætti megi stemma stigu við síauknu misræmi í færni fólks á evrópskum vinnumarkaði. Talið er brýnt að leita leiða til að meta þarfir atvinnulífs til framtíðar fyrir færni og þekkingu og að menntakerfið bregðist við til samræmis, svo efla megi samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs. Stefnumörkun Evrópusambandsins ber yfirskriftina ´New Skills for New Jobs“ sem í lauslegri þýðingu væri: ,,Ný störf krefjast nýrrar færni“. |
|
Nýtt starfstengt listnám á fagháskólastigi, í teikningu og textíl þróað með styrk frá Leonardo starfsmenntaáætlun ESB Nýtt starfstengt listnám á fagháskólastigi, í teikningu og textíl. Þriðjudaginn 11. maí kynnti mennta- og menningarmálaráðherra sér nýtt nám í teikningu og textíl sem hefst haustið 2010 og veitti viðtöku námskrár drögum. Námið er á fagháskólastigi og er tveggja ára og lánshæft. |
|
Fjöldi útgefinna Europass starfsmenntavegabréfa nær þrefaldaðist frá árinu 2008 til ársins 2009, fór úr 32 í 89. Við síðustu úthlutun Leonardo da Vinci styrka var ákveðið að starfsmenntavegabréfið nægði eitt sem sönnun á því að fólk hefði farið í þá ferð sem styrkt var þannig að ekki þyrfti lengur að skila inn brottfararspjöldum eða afritum af farmiðum. Þeir sem senda fólk af stað gripu tækifærið fengins hendi og losnuðu þar með við mikla vinnu við að safna saman hvers konar pappírum. |
|
Nýlega lauk Leonardo verkefninu ,"Retail" en það var Verslunarskóli Íslands sem leiddi þetta fjölþjóðlega verkefni Nýlega lauk Leonardo verkefninu ,,Retail” en það var Verslunarskóli Íslands sem leiddi þetta fjölþjóðlega verkefni. Tilgangur þess var að að útbúa námsefni á sviði verslunar og þjónustu fyrir reynda en ófaglærða starfsmenn á þessu sviði. Tækifæri til virkrar faglegrar símenntunar fyrir þennan hóp á þessu sviði hafa verið takmörkuð fram að þessu. Verkefnið Retail Management for Adults in Lifelong Learning (RetAiL) miðar að því að mæta þessari þörf með því að skapa sveigjanlegt námsframboð sem einstaklingurinn getur lagað að sínum þörfum. |
|
Tengslaráðstefnur - góð leið til að afla samstarfsaðila Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tenglsaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardó styrk sem kemur til úthlutunar árið 2011. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Ef þú vilt ekki fá þetta fréttabréf í framtíðinni eða ef þú hefur ábendingar varðandi fréttabréfið, vinsamlegast hafðu samband við Landskrifstofuna eða sendu tölvupóst á lme@hi.is |




