eTwinning-fulltrúar eru starfandi kennarar sem hafa reynslu af eTwinning. Hægt er að leita til þeirra um stuðning, upplýsingar, heimsóknir í skóla og þátttöku í menntaviðburðum.
Fulltrúarnir skiptast svo eftir landshlutum:

Austurland
Sigrún Árnadóttir, Menntaskólinum á Egilsstöðum.
- Netfang: sigra(a)me.is
- Sími: 471 2500
- Sigrún sér m.a. um alþjóðasamskipti hjá ME, kennir þýsku og er fagstjóri erlendra tungumála hjá framhaldsskólum á Austurlandi
- Sigrún hefur tekið þátt í eTwinning síðan 2008

Norðurland eystra
Sigurður Freyr Sigurðarson, Síðuskóla, Akureyri.
- Netfang: bibbi(a)akmennt.is
- Sími: 462 2588
- Sigurður sér um tölvur skólans, er umsjónarkennari í 10. bekk og kennir íslensku, stærðfræði, náttúrufræði og lífsleikni. Auk þess sér hann um valgreinarnar eTwinning og gerð myndbanda
- Sigurður hefur tekið þátt í eTwinning síðan 2006

Norðurland vestra
Kristján Bjarni Halldórsson, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki.
- Netfang: kristjan(a)fnv.is
- Sími: 455 8000
- Kristján sinnir kennslu og fagstjórn. Hann hefur einnig reynslu sem verkefnastjóri erlendra samskipta og hefur tekið þátt í nokkrum evrópskum samstarfsverkefnum, t.d. um notkun gagnvirkra taflna í kennslu (interactive whiteboards)
- Kristján hefur tekið þátt í eTwinning frá 2005

Suðurnes & Vesturland
Guðný Ester Aðalsteinsdóttir, Akurskóla, Reykjanesbæ.
- Netfang: gudnyester(a)gmail.com
- Sími: 420 4550
- Guðný er grunnskólakennari í Akurskóla í Reykjanesbæ, umsjónarkennari í 4. - 5. bekk og kennir íslensku í 10. bekk. Hún er einnig ritstjóri Kornsins, fréttabréfs Akurskóla
- Guðný hóf þátttöku í eTwinning síðastliðið vor

Vestfirðir
Katrín Lilja Ævarsdóttir, Leikskólanum Tjarnarbæ, Suðureyri.
- Netfang: katrinlilja(a)isafjordur.is
- Sími: 450 8290
- Katrín er deildarstjóri á yngri deild. Hún hefur mikinn áhuga á samstarfsverkefnum sem vettvangi til að stækka sjóndeildarhringinn og eiga í gefandi samskiptum við aðra
- Katrín hefur tekið þátt í eTwinning síðan 2009



