Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu um mennta- og menningarmál (Education, Culture and Audiovisual Executive Agency, EACEA) umsjón með Jean Monnet áætluninni. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu og þar á að vera hægt að nálgast öll umsóknargögn.
Á vef landskrifstofu er hægt að sjá yfirlit yfir nýjustu auglýsta umsóknarfresti í menntaáætlun ESB.


