Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Hlutverk Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, í samstarfi við Menntagátt, er að veita ráðgjöf um hvernig best megi standa að skólatengingu svo hún falli að uppeldisfræðilegum markmiðum skólastarfsins. Auk þess leiðbeinir skrifstofan áhugasömum um hvernig hægt er að bera sig eftir samstarfsskólum. Einnig veitir skrifstofan stuðning til kennara varðandi notkun upplýsingatækni í kennslu.
 

Samstarf skóla

Samstarf skólanna getur farið fram á ýmsa vegu, allt frá því að vera einungis í formi upplýsinga eða heimilda, sameiginlegra rannsóknarverkefna eða sem fastur hluti námsskrár. Hægt er að byggja á þeirri reynslu sem margir skólar hafa þegar aflað sér með þátttöku í Sókrates- og Leonardo da Vinciáætlununum. Þátttaka í eTwinning auðveldar einnig aðgengi að öðrum þáttum Menntaáætlunar Evrópusambandsins (Lifelong Learning Program, LLP).

Sífellt fleiri skólar á Íslandi og í Evrópu hafa tekið þátt í samstarfsverkefnum Evrópusambandsins. Í ágúst 2007 voru yfir 27.000 skólar skráðir til þátttöku í eTwinning.
 

Bestu verkefnin fá heiðursverðlaun

Engir styrkir eru veittir þeim skólum sem taka þátt en nokkur bestu verkefnin fá sérstök heiðursverðlaun fyrir nýsköpun og gæði. Sem dæmi má geta þess að fyrstu verðlaun í eTwinning fyrir 2005 er ferð kennara og nemenda til Kanaríeyja í eina viku með glæsilegri dagskrá.

Á móti kemur að eTwinning er sveigjanleg áætlun -- engir umsóknarfrestir, engar skýrslur, og (nánast) engar reglur (umfram það að verkefni falli að kennsluskrá og uppeldismarkmiðum hvers skóla). Einkunnarorð eTwinning eru:

KISS - Keep it Small and Simple!

Upplýsingar

Upplýsingar um skráningu kennara og skóla er að finna á stikunni til vinstri undir Skrá kennara eða samstarf.

Nánari upplýsingar veitir fulltrúi eTwinning hjá Alþjóðaskristofunni, Guðmundur Ingi Markússon. Sími: 525 5854. Netfang: gim@hi.is.