Finna áhugavert efni
Hvaða áhugasvið finnst þér henta best í samstarfi við aðra skóla? Er möguleiki á því að nýta eitthvað af kennsluefninu til að koma á samstarfi við aðra skóla? Það er góð regla að reyna að markaðssetja verkefni sem er nógu sveigjanlegt til að aðlaga að þörfum samstarfsskóla. Jafnframt þurfa markmið að vera skýr.
Vekja áhuga skólastjórnenda og annarra kennara á málefninu
Kennarar þurfa að fá samþykki skólastjórnenda fyrir verkefninu. Þar sem engir styrkir eru veittir þátttakendum getur verið um aukakostnað skólans að ræða vegna verkefnisins. Því er það nauðsynlegt að skólastjórnendur fái að fylgjast með verkefninu svo það uppfylli bæði kennslu- og uppeldisfræðilegan tilgang námsins. Ef það er mögulegt er mjög gott að fá aðra kennara til að taka þátt í verkefninu. Það getur jafnvel leitt til þess að verkefnið nái til fleiri en einnar kennslugreinar.
Finna samstarfsskóla í Evrópu
Þegar skráningu kennara og skóla er lokið á heimasíðu eTwinning, www.etwinning.net, fær kennarinn aðgang að eigin vefsvæði þar sem er hægt að leita að samstarfsskólum eða setja inn auglýsingu eftir slíku. Einnig kemur til greina að koma á laggirnar eTwinningverkefni við skóla í Evrópu sem skólinn er þegarí sambandi við. Við leit að samstarfsskólum skal hafa í huga þann aldurshóp sem verkefnið hentar best.
Athuga tölvumál eigin skóla og samstarfskóla
- Eru tölvur til staðar?
- Er laus tölvustofa?
- Er aðgengi að netinu nógu gott, til dæmis svo nemendur og kennarar geti verið á spjallrásum við samstarfsskóla?
- Er hægt að koma á fjarfundi við samstarfsskóla?
- Hefur skólinn netfang og heimasíðu sem hægt er að leita til um nauðsynlegar upplýsingar?
Það er ekki nauðsynlegt að allur þessi búnaður sé til staðar, notkun þeirra fer í raun eftir umfangi verkefnisins.
Undirbúningur og aðlögun verkefnisins að annarri kennslu
Gerðu grófa skipulags- og tímaáætlun um hvernig þú og samstarfsskólinn vilja standa að verkefninu. Samræmdu það annarri kennslu við skólann með hliðsjón af t.d. kennsludögum, starfsdögum, prófum, frídögum, helgum og síðast en ekki síst mismunandi tímabeltum í Evrópu (taktu einnig inn í mun á vetrar- og sumartíma). Kennari þarf að vera sveigjanlegur og reiðubúinn til að gera breytingar á skipulagi verkefnisins ef þörf er á eftir að það er komið af stað.
Þessi upptalning er langt í frá tæmandi en ætti að gefa þér nokkra hugmynd um hvað þarf að gera til að koma eTwinningverkefni á laggirnar.
Gangi þér vel!
Leiðbeiningar á íslensku
Almennar leiðbeiningar um eTwinning-kerfið, leit að samstarfsaðila, þátttöku í verkefnum, o.s.frv. er hægt að hlaða niður hérna. Leiðbeiningarnar voru þýddar að Dögg Láru Sigurgeirsdóttur og Björgvin Ívari Guðbrandssyni, kennurum við Langholtsskóla.
Upplýsingar
Upplýsingar um skráningu kennara og skóla er að finna á stikunni til vinstri undir Skrá kennara eða samstarf.
Nánari upplýsingar veitir fulltrúi eTwinning hjá Alþjóðaskristofunni, Guðmundur Ingi Markússon. Sími: 525 5854. Netfang: gim@hi.is.



