Að eflast og eldast
Evrópuárið 2012 er ár ,,active aging'' til að undirstrika mikilvægi þess að auknum aldri fylgi ekki fækkun tækifæra til þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu sem og að góðri heilsu sé viðhaldið. Þessi áhersla er sérlega mikilvæg í ljósi þess að meðalaldur í Evrópu fer sífellt hækkandi. Með ,,active aging'' er hvatt til vitundarvakningar um málefni eldri borgara og aðgerða til hámarka lífsgæði þeirra.
Markmið menntaáætlunar Evrópusambandsins
Markmið menntaáætlunarinnar er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu. Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu.
Lögð er áhersla á að:
- auka gæði í kennslu
- efla Evrópuvitund í menntun
- halda tungumálakennslu á lofti
- auka skilning á margmenningu
- ýta undir nemendaskipti



