Umsóknarfrestir Comenius 2012

Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept
Aðstoðakennarar, 31. jan
Samstarfsverkefni 21. feb
Svæðasamstarf, 21. feb
Nemendaskipti, 1 des


Comenius bæklingur




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

Almennt markmið Comenius áætlunarinnar er að allir nemendur fái gæðamenntun sem hjálpi þeim við að takast á við verkefni í alþjóðlegu og síbreytilegu þjóðfélagi.
 

Europe 2020

Árið 2010 var kynnt ný stefnuáætlun Evrópusambandsins sem ber heitið Europe 2020 - A European Strategy for smart, sustainable and inclusive growth. Áætlunin kveður m.a. á um helstu markmið Evrópusambandsins á sviði menntamála til ársins 2020. Ber þar hæst að nefna að ná brottfalli nema á grunnstigum skólakerfisins undir 10% og ná hlutfalli ungs fólks með framhaldsmenntun upp í 40%. Jafnframt er tilgreindur fjöldi annarra tillagna er miða að því að auka gæði menntunar í Evrópu og gildi hennar og hagnýtingu fyrir atvinnulífið. Í því samhengi er sérstaklega minnst á mikilvægi þess að viðhalda því góða samstarfi sem á sér stað í gegnum menntaáætlun Evrópusambandsins. 

Evrópsk samvinna í verki

  • Allir nemendur fái tækifæri til að þróa með sér grunnfærni
    • Færni í móðurmáli
    • Færni í erlendum tungumálum
    • Færni í stærðfræði og grunnfærni í tækni og vísindum
    • Færni í tölvulæsi
    • Færni í mennta sig
    • Félagslega og borgaralega færni
    • Frumkvæði og framkvæmdahæfni
    • Menningarlegt læsi og tjáningarhæfleika
  • Bjóða upp á hágæða nám fyrir alla nemendur. Það felur í sér að samhæfa menntun þannig að jafnræði gildi í skólakerfinu.
  • Draga úr brottfalli nemenda og betrumbæta stuðning í sérkennslu.
  • Bæta gæði kennaramenntunar og annarra sem starfa við skóla.
     

Sértæk markmið Comenius

  • að þróa þekkingu og skilnings á meðal ungs fólks og kennara á mismunandi menningu og tungumála í Evrópu
  • aðstoða ungt fólk að öðlast grunnfærni í lífinu og nauðsynlegrar hæfni sem starfskraftar framtíðarinnar
     

Framkvæmdamarkmið Comenius

  • Að auka möguleika á auknum námsferðum nemenda og kennara í Evrópu
  • Aðstoða nemendur að tileinka sér grunnfærni og persónulega hæfni og stefnt er a.m.k. 3 milljónum nemenda í evrópskum samstarfsverkefnum skóla
  • Að hvetja til tungumálalærdóms
  • Að styrkja þróun og nýjungar í tölvumenntun,
  • Að koma á Evrópuvitund í kennaramenntun
  • Að styrkja umbætur og kennslufræðilega nálgun í skólastjórnun