Rafrænar umsóknir 2012 og handbók
Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafræn umsóknareyðublöð fyrir 2012. Einnig er þar hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins. Mikilvægt er að vista eyðublaðið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það.
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær þarf líka að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests. Póststimpill gildir.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Comenius
Háskólatorgi
101 Reykjavík
ATH! - Við lok ferðar ber að skila inn lokaskýrslu sem ykkur er send með tölvupósti. Með skýrslunni þarf að fylgja afrit af farseðli og kvittun fyrir námskeiðsgjaldi.
Umsóknir og eyðublöð 2012
| Áætlun | Umsóknareyðblað | Skýrslur | Leiðbeiningar |
|---|---|---|---|
| Endurmenntun |
|
Landskrifstofa sendir styrkþegi tengil í lokaskýrslu |
|
| Fara sem aðstoðarkennari |
|
Landskrifstofa sendir styrkþegi tengil í lokaskýrslu | |
| Fá aðstoðarkennara |
Leiðbeiningar fyrir rafræn umsóknareyðublöð
Vinsamlegast byrjið á því að sækja ykkur handbókina fyrir rafræna umsóknareyðublaðið (hér fyrir ofan) og lesa ykkur til um helstu atriði, áður en þið hefjist handa við að vinna með umsóknareyðublaðið. Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 10 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:
-
Vista rafræna umsóknareyðublaðið á skjáborðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum. Opna umsóknareyðublaðið frá skjáborðinu.
-
Fylla út eyðublaðið (í tölvunni) - Ekki þörf fyrir að vera nettengdur á meðan;
- Smella á Validate-hnappinn á rafræna forminu eftir hverja síðu (þarf ekki að vera nettengd/ur): Þessi aðgerð tryggir að allir skyldureitir séu útfylltir.
Leiðbeiningar fyrir skýrslugerð
Endurmenntun kennara
Styrkhafi skal skila lokaskýrslu um endurmenntunarnámskeið innan fjögurra vikna frá því að heim er komið. Athugið: Lokaskýrsluform verður sent til þátttakenda í tölvupósti.
Með skýrslunni þarf að senda inn frumrit af flugmiða og öðrum farseðlum/kvittunum sem tengjast ferðakostnaði. Það þarf ekki að framvísa reikningum vegna uppihaldskostnaðar erlendis. Styrkur vegna uppihaldsskostnaðar kennara hjá Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi hefur verið á bilinu 50% – 75% af uppihaldstaxta Evrópusambandsins samanber töflur aftast í umsókn.
Fara sem aðstoðarkennari
Eftir heimkomu þarf að skila inn öllum ferðakvittunum til Landsskrifstofu, svara „evaluation“ spurningalistanum og taka saman stutta reynslusögu um dvölina.
Töflur vegna uppihaldstaxta
Hér má finna töflur sem gefnar eru út af Evrópusambandinu yfir hámarksstyrk til uppihalds. Til uppihalds telst kostnaður vegna gistingar, fæðu og ferða meðan á dvöl stendur. Ekki þarf að skila kvittunum vegna uppihaldskostnaðar. Vinsamlegast athugið að ártalið í töflunum vísar til þess árs sem sótt var um styrk, ekki hvenær ferðin var farin.



