Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

EG_20

banner_vertical.gif
 

 

Myndband um Europass ferilskrá og tungumálapassa

Europass er safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu. Meginmarkmiðið með Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri í Evrópu. Vonast er til að frumkvæðið verði til þess að auka hreyfanleika fólks á milli landa, bæði vegna menntunar og atvinnu.

Hvað er Europass?

Í Europass möppunni eru fimm skírteini eða skjöl sem tengja má hvert öðru. Hægt er að nota öll fimm skírteinin í einu eða hvert fyrir sig. Þau lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Í möppunni, sem er samhæfð fyrir öll lönd Evrópu, eru því öll skírteini sem skipta máli vegna menntunar- og starfshæfni einstaklings.

Hægt er að safna eftirfarandi skírteinum í möppuna:

Stefnumot_mynd

Stefnumót við heiminn

Margir hafa áhuga á því að víkka sjóndeildarhringinn og prufa eitthvað nýtt með því að dvelja um nokkurra mánaða eða ára skeið í útlöndum við nám eða störf. Slík dvöl getur verið ákaflega jákvæð og gefið fólki veganesti sem endist því allt lífið. Margar spurningar vakna þegar hugmyndin um að flytjast á milli landa er tekin til alvarlegrar athugunar. Er ég tilbúin/n? Hvert á ég að fara? Hvernig á ég að undirbúa mig? Hvað þarf ég að taka með mér? Hvernig á ég að finna húsnæði, vinnu, skóla, vini ...? Ef ég fer, hvernig get ég fengið það mesta út úr dvölinni?
Bæklingur þessi er ætlaður öllum þeim sem hugleiða hvort dvöl erlendis gæti verið einmitt það sem þeir vilja eða þurfa en eru samt ekki alveg vissir.

 

Hvernig má nálgast Europass skírteinin?

Aðgengi að skírteinunum er mismunandi. Ferilskrá og tungumálavegabréf fylla einstaklingar út sjálfir, annað hvort rafrænt eða á pappír. Viðaukar við prófskírteini fylgja öllum íslenskum háskólaprófum og mat og viðurkenning á starfsmenntun er aðgengilegt á þessari heimasíðu verkefnisins og á menntagatt.is. Starfsmenntavegabréf þarf hins vegar að sækja um til Europass skrifstofunnar.
 

Upplýsingar

Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands hefur umsjón með og sér um kynningu á Europass á Íslandi. Verkefnisstjóri Europass á Íslandi er Dóra Stefánsdóttir.