Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Velkomin á heimasíðu Landskrifstofu eTwinning!

eTwinning er áætlun um rafrænt skólasamstarf í Evrópu. eTwinning heyrir undir Comenius hluta Menntaáætlunar Evrópusambandsins, Lifelong Learning Program (LLP).*

eTwinning

  • eTwinning býður endurgjaldslaust upp á stuðning, rafræn verkfæri og þjónustu til þess að skólar geti stofnað til samstarfs í lengri eða skemmri tíma á sem einfaldastan hátt.
  • Skráningu kennara og skóla fylgir aðgangur að eigin vefsvæði þar sem auðvelt er að finna samstarfsaðila
  • eTwinning verkefni eru unnin af tveimur eða fleiri kennurum frá mismunandi Evrópulöndum. Verkefni geta verið hvernig sem er, stór eða smá, til lengri eða skemmri tíma, svo framarlega að þau falli að kennsluskrá og uppeldismarkmiðum hvers skóla.
  • TwinSpace er einskonar rafræn kennslustofa sem auðveldar verkefnavinnuna og allt utanumhald. TwinSpace er öruggt svæði þar sem einungis viðkomandi nemendur og kennarar hafa aðgang.
  • Allar kennslugreinar eru gjaldgengar í eTwinning.
  • Frír aðgangur að veftækjum ýmiskonar fylgir þátttöku í eTwinning.
  • Sveigjanleiki í fyrirrúmi! Engir umsóknarfrestir, engar skýrslur og (nánast) engar reglur. Einkunnarorð eTwinning eru: KISS – Keep it Small and Simple.
  • Sýndarleiðangur!

 

Fulltrúi Íslands í Schoolovision! tók ásamt samstarfsfólki á móti Evrópuverðlaunum eTwinning í sínum flokki.

 

Þema: Fjölmenning og sú áskorun sem í henni felst fyrir skóla (Interculturalism appreciation and inclusion: Challenging schools).

 

Aðalsíða eTwinning í Evrópu

Miðstöð eTwinning, nýskráning, upplýsingar, ofl.
www.etwinning.net

 

Íslenska eTwinning bloggið

Kennarar blogga um eTwinning!
www.etwinning.blog.is


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir fulltrúi eTwinning hjá landskrifstofunni, Guðmundur Ingi Markússon. Sími: 525 5854. Netfang: gim@hi.is.

 

*eTwinning var hleypt af stokkunum 2005 og var þá hluti eLearning áætlunar ESB um rafrænt nám. Með tilkomu LLP 2007 var eLearning lögð niður og eTwinning varð ein af undiráætlunum Comenius.