Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

Menntun til nýsköpunar: Fræðslu- og umræðufundur 9. desember kl. 9.00-13.00

Í Evrópu hefur verið lögð aukin áhersla á öfluga nýsköpunarmenntun.  Þetta kemur meðal annars fram í stefnumörkun Evrópusambandsins á sviði menntamála. Atvinnuleysi hér á landi er nú hærra en áður hefur þekkst. Þrátt fyrir að nemendum í framhalds- og háskólanámi hafi fjölgað verulega er ljóst að umtalsverður hópur fólks finnur sér hvergi sess á atvinnumarkaði eða í námi.  Til að sporna við langvarandi atvinnuleysi þessa hóps þarf að leita nýrra leiða. Menntun í nýsköpun og frumkvöðlafræðum er ein af þeim leiðum sem bent hefur verið á til úrlausnar.

Evrópumiðstöð starfs- og námsráðgjafa og Menntaáætlun Evrópusambandsins,  Leonardo og Grundtvig áætlanirnar, stóðu fyrir fræðslufundi þann 9. desember s.l. sem hafði það markmið að stuðla að samræðu um nýsköpun og að kynna verkefni og möguleika sem stuðlað geta að eflingu nýsköpunar í menntun.

Erindi fyrirlesara

Matsblað fyrir ráðstefnuna

Dagskrá:

Kl. 9.00 Andrés Pétursson og Margrét Sverrisdóttir verkefnisstjórar hjá Menntaáætlun ESB: Menntaáætlun Evrópusambandsins; Leonardo og Grundtvig áætlanirnar, Euroguidance, ReferNet og New Skills Network

Kl. 9.20 Rósa Gunnarsdóttir sérfræðingur í leik- og grunnskóladeild Mennta- og menningarmálaráðuneytis: Nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, fýsilegur kostur fyrir íslenskt menntakerfi?

Kl. 10.00 Kristján Ketill Stefánsson, verkefnisstjóri hjá Menntavísindasviði HÍ: IÐN2A03 – Nýsköpunarmennt og atvinnulíf í grenndarsamfélagi

Kl. 10.40 Kaffihlé

Kl. 11.00 Ragnhildur Sigurðardóttir lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands: Landbúnaðarháskóli Íslands í evrópsku samstarfi um starfsmenntun: Kynning á verkefnunum Sheepskills; Nám og fræðsla fyrir sauðfjárbændur og MW sonet; þar sem konur í dreifbýli nota nýja aðferð við fræðslu til nýsköpunar.

Kl. 11.40 Elfa Hermannsdóttir deildarstjóri kennsluráðgjafar og námsefnisgerðar og Halldór Sævar Guðbergsson starfs- og endurhæfingarráðgjafi hjá Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga: Kynning á verkefninu Active

Kl. 12.20 Umræður og léttur hádegisverður

Fundarstjóri: Dóra Stefánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar og ReferNetinu